Um vinnustaðinn
Við erum þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni með áherslu á mikilvægi gagna. Við vinnum í því að framtíðarvæða gagna- og tækniumhverfi okkar viðskiptavina. Verkefnin geta verið allt frá því að búa til framtíðarsýn fyrirtækja í upplýsingatækni yfir í það að gera mælaborð fyrir stjórnendur.
Við ætlum að gera þetta með því að búa til skapandi og framsækið teymi með okkar viðskiptavinum sem er lausnamiðað og býr yfir ríkri þjónustulund. Þannig teljum við okkur líklegri til árangurs sem framúrskarandi þjónustufyrirtæki. Okkar markmið er að skapa og skila þekkingu til allra sem taka þátt í okkar verkefnum. Að skapa framsækið umhverfi með nýjustu tækni sem ávallt er hægt að draga lærdóm af.
Okkar þjónustuframboð samanstendur af uppbygging á framtíðarvænum gagnaumhverfum með stefnumótun og greiningu í upplýsingatækni, umsjón með gagnaumhverfum, samþætting gagna á milli kerfa, mælaborð, skýrslugerð, gervigreind (AI) og vélnám (Machine Learning).
Okkar markmið er að skapa þekkingu
.. úr gögnum
.. með tækni
.. með þér!